Nú getur þú loksins nálgast alhliða kynfræðslu fyrir fullorðið fólk!
Ég vil skapa samfélag þar sem það er pláss til að skoða og læra um kynlíf og sig sem kynveru; þar sem leikur, gleði og forvitni ræður ríkjum.
Þessi kynfræðslu streymisveita er með kjarnaða fyrirlestra um kynlíf og viðtöl við sérfræðinga þar sem allir króka og kima kynlífs eru skoðaðir, og ekkert er okkur óviðkomandi. Þú getur bæði horft og hlustað, á hvaða tæki sem er, hvenær sem er og hvar sem er. Hverjum þætti fylgir viðbótarfróðleikur í textaformi, hlekkir á tengdar vefsíður og rannsóknir svo þú getir kafað enn dýpra, ef áhuga er fyrir því.
Hér má ræða allt og skoða allt.
Ég vil gefa þér alla mína þekkingu á sviði kynfræði.
Gjörðusvovel.
Kynlíf snýst um sjálfsþekkingu og frelsi og nú loks sköpum við rými þar sem hægt er að leyfa sér að njóta. Hér er gengið út frá því að kynlíf sé leikur fullorðna fólksins, þar sé skemmtilegur ævintýraheimur með endalausri uppsprettu af ánægju og unaði.
Ég býð þér með mér í ferðalag; inn í hugarheiminn, líkamann, unaðinn, kynfærin og gleðina.
Ertu eldri en 18 ára?Til þess að nota þessa síðu verður þú að vera 18 ára eða eldri.
OMG HLAKKAR ÞIG EKKI TIL?!
Sko, það er bara eitt sem er gott að hafa í huga og það er að ef þú vilt halda áfram með áskriftina þína þarft þú ekki að gera neitt, BARA SLAKA OG NJÓTA! Að prufutímabili loknu, sumsé eftir 7 daga, þá færistu yfir í greidda áskrift frá og með þeim degi. Þú þarft ekkert að gera neitt, þetta gerist allt í töfraheimi netsins. Mega kósí!
Svo kemur sjálfkrafa rukkun í næsta mánuði þegar áskriftartímabilið endurnýjast og þannig koll af kolli þangað til að þú segir upp áskriftinni. Sem þú vonandi gerir ALDREI! Eða þú veist, við erum svo skemmtileg og það verður svo gaman hjá okkur!