Camilla Rut er kunn ansi mörgum enda er hún algert gull af manneskju og svo skemmtileg!

Hér ræðum við saman um Bridget Jones ástarsorg, ástina, erfið tímabil, tenginguna og ástarlífið.

En ég bað Camillu um að lýsa ástinni…

Er hægt að lýsa henni?

En svo kom hún með ein bombu sem var – er hægt að vera í ástarsorg í sambandi?

Camy kemur inn á svo mikilvægan punkt margir kannast við en er sjaldan eða aldrei talað um – ástarsorg innan sambands, þegar tengingin rofnar og fólk veltir fyrir sér hver næstu skref séu, hvort hreinlega sambandið sé komið á endastöð.

Og hvernig tæklarðu hamingjuna í sambandi? Ertu sífellt í skuld eða leggurðu líka inn?

Þetta er eitthvað sem allir elskendur hafa gott af því að horfa á og ræða saman sín á milli um!

En Camilla veitir okkur góð ráð og fallega innsýn í hvernig sé hægt að rækta sambandið og mikilvægi þess að taka ábyrgð á sér og sínum tilfinningum.

Og kannski ágætt að taka fram að viðtalið var tekið fyrr á þessu ári.