Hér höfum við litlu systir kynlífsklúbbsins City Swingers 1

Þessi klúbbur er í hæglátri götu á Nörrbro og hann er er ögn blætis og BDSM-miðaðri en „stóra systirin“ á Amager.

Þetta var reyndar frekar kómísk heimsókn því ég fór í hádeginu og það var ég, starfsmaður og svo nokkrir gaurar. Allir einhvern veginn mjög rólegir á því, fá sér kaffi og þurrkað rúgbrauðssnakk og spjalla um kynlífsklúbbasenuna. Og já allir voru á nærbrókunum.

Æ horfðu bara á myndbandið – það segir þér allt sem segja þarf 🙂

Alveg rétt, eitt enn, ef þig langar að heimsækja þennan klúbb þá mæli ég með því að þú skoðir heimasíðuna þeirra.

Hefurðu farið? Hvernig fannst þér? Langar þig að fara?