Nú loksins færðu allt viðtalið við elsku bestu Helgu Snjólfsdóttur!

Hún er að fara halda seinasta námskeiðið (í bili), nú í byrjun október fyrir konur, sem heitir: Kvenleiki & nánd og hægt er að skrá sig hér.

Hér fer hún vel í gegnum hvaðan hvatinn að námskeiðinu kemur og hvar og hvernig hún er sem kynvera.

Þetta er bókstaflega það að vera fluga á vegg í innilegu tveggja kynvera spjalli!

Það var ekkert okkur óviðkomandi! Við töluðum um líkamsímynd og lýtaaðgerðir, sjálfsfróun, endaþarmsörvun í sjálfsfróun, uppeldi, hóruskömm og kynlöngun…og allskonar annað! Sorrymeðmig, en þetta er gull! Eins og Helga reyndar er líka 🙂