Í ljósi þess að nú í ágúst er PRIDE hér á Íslandi og við fögnum fjölbreytileikanum þá finnst okkur hjá Betra kynlífi um að gera að brjóta útaf vananum og birta myndband úr fræðsluseríunni, „Kjaftað um kynlíf – foreldrar fræða börn sín“ sem byggir á uppseldri samnefndri handbók eftir Siggu Dögg kynfræðing en myndband þetta er eitt af yfir tuttugu myndböndum í seríunni.
Þannig að ef þú ert foreldri eða forsjáraðili barns á aldrinum 0-6 ára, þá er þetta myndband fyrir þig!
Af hverju ættir þú að fræða barnið þitt um kynlíf?
Börn fæðast sem kynverur en fræðast um kynlíf og kynverund út frá ýmsu í umhverfi sínu. Það gera sér kannski ekki margir grein fyrir því að upphaf kynfræðslunnar og mótun kynverundar á sér stað um leið og þú tekur nýfætt barnið þitt í faðminn, kyssir það og knúsar. Börn læra af snertingu, umræðum um líkamann og af samböndum fólks í kringum það. Kynfræðsla er því ferli sem helst út lífið á öllum æviskeiðum og er samsett úr mörgum ólíkum þáttum. Það má ímynda sér að hver þáttur sé einn kubbur, sem hægt er að raða saman á margs konar hátt. Það er því engin ein rétt eða röng leið til að ræða og fræða um kynlíf, því öll erum við einstök.
Það sem mestu máli skiptir er að hefja samræðurnar og það er alltaf réttur tími!