Þið skiljið ekki hversu langlíf þessi mýta er, og alveg jafn afskaplega þreytandi og flestar aðrar mýtur!

„Hvað hefurðu verið með mörgum?“ er örugglega algengasta spurningin sem ég fæ í kynfræðslu. Grínlaust.

En af hverju spyrjum við að þessu og hvað höldum við að þetta segi okkur um kynlíf, nautn, gleði og ánægju?

Förum aðeins í gegnum þetta.

Auðvitað tengist þetta blessaða kynlífshandritinu en meira um það hér.